Við í Drekaslóð höfum ákveðið að uppfæra merki samtakanna og leitum því nú að bestu hugmyndinni að nýrri útfærslu.
Drekaslóð fagnaði tíu ára afmæli árið 2020 en vegna Covid-19 varð að fresta öllum hátíðarhöldum sem og öðrum uppákomum því tengdu. Eitt af því sem samtökin voru með í huga var að óska eftir hugmyndum um uppfært merki samtakanna.
Nú, árið 2021, ætlum við að fara af stað með keppnina og óskum hér með eftir hugmyndum að uppfærðu merki Drekaslóðar. Við erum að leita að bestu útfærslunni sem byggir á núverandi merki þar sem helstu eiginleikar myndarinnar fá að njóta sín, en í nýrri og betri útfærslu. Við óskum einnig eftir því að nafn samtakanna verði sett undir myndina.
Þetta er gott tækifæri til þess að leyfa sköpunargleðinni að njóta sín og hjálpa okkur að vaxa í átt til framtíðar í leiðinni.
Vegleg verðlaun eru í boði, en sá aðili sem á bestu hugmyndina fær 50.000 kr. í verðlaun.
Hér að neðan er upprunalegt merki samtakanna sem við óskum eftir að uppfæra í nýrri útfærslu.

Hugmyndum skal skilað inn til drekaslod@drekaslod.is í góðri upplausn fyrir lok föstudagsins 15. október 2021.
Munið að senda nafn og símanúmer/tölvupóstfang með hugmyndinni.
Við tilkynnum síðan vinningshafann 1. desember 2021.
ATHUGIÐ
Þátttakandi þarf að vera tilbúin/n til þess að gefa frá sér höfundarréttinn á vinningshugmyndinni og getur ekki undir nokkrum kringumstæðum gert tilkall til hennar á meðan myndin er notuð sem merki/lógó Drekaslóðar.
Við áskilum okkur einnig allan rétt til þess að hafna öllum tillögum ef svo ber undir.
One thought on “Viltu taka þátt í spennandi hönnunarkeppni?”
Comments are closed.